19.05.2008 14:30:33 / asafrank
ég bara varð að blogga um þennan merka viðburð. Haldiði ekki að ég hafi grillað lambakótilettur alein í gærkvöldi. Þvílíkur meistarakokkur. Mín er bara farin að geta eldað alls konar, lasagna, fisk, grilla og ef til vill best í því að baka súkkulaðiköku nammm...

ég er samt farin í keppni við Kollu um að sleppa allri óhollustu í 3 vikur !!!!!
sjáum hvernig það fer, gæti verið erfitt þar sem afmælið hennar Söru er á næsta leyti og það er alltaf eitthvað hrikalegt gúmmelaði en ég ætla að reyna að vera sterk og halda þetta út.
ég fór í búð í gær þar sem það var minn seinasti nammidagur í langan tíma og keypti mér lakkrísreimar og bingókúlur og til kók..skellti þessu öllu í mig.
Ég er í fríi alla vikuna svo endilega ef einhver vill leika þá er ég til.
kv.ása grillari

»
02.03.2008 16:21:46 / asafrank
Þar sem um seinustu helgi þá var ég heima bólgin og með verki þá gerði ég ekki mikið annað en að sofa og horfa á telly...það var ekkert sérstaklega skemmtilegt í telly.
en allavega þessi helgi var andstæða þess...á föstudeginum var mannfræði árshátíð og það var ótrúlega skemmtileg:haha
og síðan var farið á karokíbar..ekkert smá fyndið..söng þar með þremur öðrum stelpum totually clips of my heart..held að það heyrst í okkur fram á göt
var allavega heillengi í bænum að dansa...síðan á laugardagskvöldinu var farið á hjálmatónleikana og þeir voru sko ekki síðri...
jæja þá er komið stutt færsla um party stand mitt..síðan næstu helgi verður farið í afmæli til möggu...ég hætti bara ekki


kv.ása party mannfræðingur
»
21.02.2008 17:30:35 / asafrank
jæja þá er aðgerðin búin. Fór í morgun og fékk kæruleysistöflu og hálftíma seinna fór ég í stólinn. Fékk að horfa á friends og alles með taflan að gera sitt gagn. Síðan kom maður og deyfði mig. Síðan var ég eiginlega bara sofandi allan tímann opnaði augun af og til og sá þegar var verið að sauma mig aftur saman..frekar creepy. Síðan var ég svo vönkup eftir pilluna að mamma og önnur kona þurftu að hálfgert að bera mig út í lyftuna og út í bíl..síðan ég er bara búin að liggja í rúminu með parkodínm kælipoka og mest verið sofandi,
Ekki öfunda ég þá sem voru á eftir mér því ég kom þarna úti vönkuð og með kælipoka þvíllíkt bólgin.
kv.ása tannvesen dama
»
20.02.2008 18:52:53 / asafrank
jæja þá er komið að því, tannaðgerðin skelfile
. Það er að fara setja skrúfu upp í mig til að það sé hægt að setja tönn þar eftir 6 mánuði. Spennandi er það ekk
...ég þarf að taka kæruleysispillu og það verður fyndið að sjá hvernig það verður. ákvað að deila þessu með ykkur.
kv.ása í stöðugu tannvesen

»
10.02.2008 14:06:32 / asafrank
SJÆSE!!! ég var sem sagt að koma heim frá ítalíu og það var engin smá heimkoma.
Ferðin sjálf var alveg yndirleg og ekki hægt að biðja um meira..fór meira að segja í þyrlu upp á jökul til að skíða niður...sjúklega töff..en heimferðin var ekki alveg eins skemmtilegt...það var byrjað á því að vakna klukkan 07.30 borða morgunmat og klára að pakka ofl og rútan kom klukkan 09.00 og tók rútan um 3 tíma..síðan var að check in á flugvellinum...það var bara djók..röðin sem við fórum í tók 2 tíma og allar aðrar raðir voru búnar..vorum að pæla að hoppa bara til Rússlands..sú röð gekk svo hratt fyrir sig..en allega síðan vorum við loksins búin að þessu veseni þá var að bíða í um aðra tvo tíma eftir vélinni...allt í lagi með það..síðan var farið í vélina og átti heimferðin að taka 4 tíma en nei ekki aldeilis...það var ekki hægt að lenda í keflavík svo við þurftum að fara til akureyrar og þar biðum við í 3 tíma áður en var sagt að við þurftum að gista þá yrði ekki flogið...við þurfum sem sagt að gista á stað sem var aðeins fyrir utan akureyri sem reyndar mjög fínn staður og flugið var farið um 10 og kom ég heim í efstasund um 12.30...
það er ekkert smá ferðalag og ég er bara "pínu" þreytt eftir allt þetta
jæja þá tekur veruleikinn aftur við og hlaðan á morgun.
kv.ása sem á endalausar flugvallasögur
»
01.02.2008 09:05:46 / asafrank
jæja þá er komið að því. Ég er að fara á skíði á morgun..hlakka ekkert smá mikið til

...ÍTALÍA hér kem ég !!!!!!!!
bara svona að deila gleðini með ykkur
kv.ása skíðagarpur
»
29.01.2008 09:13:57 / asafrank
klukkan er 9 og ég er mætt á þjóðarbókhlöðuna..er loksins komin á smá skrið síðan um jólin...þetta var svo gott að vera í fríi til 14.janúar...en maður verður fyrst að fara að læra til að geta eitthvað í þessum þremur 100% prófum sem ég er að fara í...sjæse...
hlakka sko ekki til þess að fara í þau...þetta er heldur ekki það skemmtilegasta sem ég er að læra núna..rannsóknaraðferðir í mannfræði..gæti verið einn af leiðinlegustu tímum sem ég hef farið og líka að kennarinn talar svo hratt og beint upp af blaði að maður nær ekki helmingnum sem hann er að segja...og líffræðileg mannfræði...það gæti reyndar verið skemmtilegt en ekki í augnablikinu þar sem það er verið að tala um erfðafræði...ekki beint það sem ég var að læra í kvennó...svo ég horfi mikið út í loftið eða teikna myndir á glósurnar mínar...ég er orðin frekar góð í því..hehe
en hvað haldiði! meiri símavandræði..eftir að fallegi motorolda síminn minn dó vegna pestó kjúklings þá var ég nokkuð ánægð með símann minn sem ég keypti fyrir 10.000..ég hugsaði að ég ætti að kaupa ódýrasta síminn sem ég myndi finna því það kemur alltaf eitthvað fyrir þá hjá mér og viti menn! haldið ekki að skjárinn á símanum mínum er orðinn blár og orðið voða tricky að senda sms ofl...ekki sneddý
það er meirasegja búið að reyna að gefa honum prozac þar sem hann var svo blue (öðru orði þunglyndur
) en ekkert virkaði svo ég þarf að láta kíkja á hann en ég hata viðgerðir núna eftir að hafa reynt að kaupa mér flottan prentara...
allavega ælta að fara að reyna að gera eitthvað að vita fyrst ég er komin á hlöðuna svona snemma...
kv.ása læridama með ónýta síma
»
13.01.2008 19:45:27 / asafrank
ég er með smá könnun í gangi. ég hef ekki farið lengi inn á bloggið mitt þar sem ég hélt að allir væru hættir að lesa þetta bull en síðan sá ég að í dag hafa komið 38 inn á síðuna. ég trúi ekki að svo margir hafa ætlað að koma, örugglega veriið að ruglast á síðum eða eitthvað.
endilega kvittið ef þið skoðað þetta.
smá pæling í gangi.
kv.ása djúpt hugsi
»
01.11.2007 18:15:38 / asafrank
»
31.08.2007 18:17:09 / asafrank
jæja þá er maður búinn að fá sér nýjan síma en syrgir enn fallega
flotta símann minn... allavega...mín er bara að fara að byrja í
háskóla..mér finnst ég vera svo stór en samt svo lítið í leiðinni
þ.e.a lítill busi í háskólanum og stór að byrja í HÍ...svona er
lífið víst

mér líst bara vel á mannfræðina ... var að koma úr 5
daga veiðiferð með pabba og stebba á vopnafirði..rosa skemmtilegt

veiddi lax og bleikju og alles...og síðan vorum við líka að
sleppa seiðum og fara fiska á milli staða...rosa fjör... samt
svolítið fyndið..týpískt ég...sem sagt á miðvikudeginum á fórum við
beint eftir vinnuna m´na um 3 og þá var ferðinni heitið til
Vopnafjarðar og það engin smá leið...við vorum frekar fljót á
leiðinni en vorum samt 7 og hálftan tíma...þegar við vorum komin
upp í hús þar sem við myndum vera þá fann pabbi ekki töskuna mína
og viti menn.mín taska var enn heima niðri hjá mér fallega pakkað
saman og allt saman

sem betur fer var gott veður daginn eftir
svo mér var ekkert kalt né neitt og sem betur fer var vinafólk
mömmu og pabba að koma kvöldið eftir svo það tók töskuna mína
með..úps.... einnig festi ég flugi í fallega nýja veiði jakkanum
hennar mömmu og við gleymdum alltaf að taka hana úr svo ég var með
fluguna fasta á mér á erminni alla ferðina..hehe...var komin með
nokkur sár á hendina eftir ferðina svona var þetta..hehe kv.ása
mikla veiðidaman
»
21.08.2007 15:44:56 / asafrank
í morgun var ég á morgunvakt í vinnunni sem er bara eins og gengur og ætlaði að vera rosa sniðug að taka með mér kjúkling sem hafði verið í matinn í gær og borða hann í hádeginu. Síðan þegar ég búin að vera í vinnunni um tvo tíma þá kíkji ég ofan í tösku og þá er allt útí olíu..eftir kjúkling..þá hafði boxið lekið..frábært ekki nóg með að allt dótið var útí pestó kjúklinga olíu þá var síminn minn líka...það komst olía inní í símann minn og hann vildi ekki virka svo ég fór með hann til mannsins í vinnunni sem gerið við allt og hann tók hann allan í sundur og olía allstaðar og fallegi motorola síminn minn ÓNÝTUR!!!! vá hvað ég var pirruð..allt sem ég er búin að gera fyrir þennan síma og þá eru þetta endalokin hans. Ég var að vinna inni á baði og ég var svo reið út af þessu að gömlu konurnar voru farnar að vera hræddar við mig..
og til að toppa daginn þá var brjáluð demba þegar ég var að hjóla heim...þetta er sem sagt ekki búinn að vera besti dagurinn...
kv.ása í vondu skapi
»
28.06.2007 19:27:34 / asafrank
»
19.06.2007 12:04:40 / asafrank
í vinnunni minni þá þarf maður að vera kominn 6:15 ef maður er á
morgunvakt. Í morgun þá vaknaði ég klukkan 5:40 til að fara í
vinnunna, var búin að gera allt klárt meira að segja með föt til að
fara í ræktina eftir vinnuna Ég hljólaði á fullu til að vera ekki
of sein. Þegar ég kom þangað þá sá ég fólk sem eru ekki á vaktinni
minni svo ég fór að tala við eina stelpuna þá var þetta bara ekki
vaktin mín, ég átti ekkert að mæta fyrir 15. Ömurlegt að vakna
svona snemma og þurfa síðan ekki að fara að vinna. Svo ég hljólaði
aftur heim, mjög niðurbrotin og fór aftur að sofa. ÉG sem ætlaði í
bíó í kvöld. Ég var alveg búin að plana dagiinn þannig að ég væri á
morgunvakt, einhvern veginn fannst mér bara að ætti að mæta snemma,
lúði ég! ég hafði verið á morgunvakt daginn áður og mömmu fannst
skrítið að ég væri að fara aftur á morgunvakt en ég hlustaði ekkert
á hana eins og vanalega þegar fólk segir að ég sé að gera eitthvað
rangt..pínu þrjósk... allavega núna er ég aftur vöknuð en nenni
ekki neinu þar sem ég öll orkan mín var notuð í morgun. kv.ása
vaktarnörd
»
11.06.2007 14:09:46 / asafrank
»
30.05.2007 23:42:46 / asafrank
það er ekki mikið að búið að vera gerast hjá minni nema að
vinna..er sem sagt byrjuð að vinna í laugadalslauginni...það er
bara fínt...hef meira segja aðra hverja helgi frí..bara lúxus á
minni hehe... hef ekki mikið að segja nema frá þvi að um daginn þá
var ég að fylla á kakóið í kakóvélini og ég næstum því búin að
fylla á nei missi ég ekki allt einu pokann og hann flýgur yfir mig,
vélina og lendir á gólfinu..ekki kúl..ég var öll út í kakói..og ég
sturtaði úr skónum mínum kakó..þetta var alveg eins og þegar maður
er á strönd og sandurinn fer alltstatðar..kakóduft gerið það
líka..seinna um daginn þá var ég seta eitthvað í vasann minn og
voru þeir ekki fullir af kakó líka... ekki mikið annað búið að
gerat..ákvað að deila þessari týpískri reynslu minni úr vinnunni

kv.ása
»
Síður:
1 2 3 ...
11